Flóttamönnum boðið á völlinn

Leikmenn Dortmun fagna marki í leiknum sem þeir unnu 7:2.
Leikmenn Dortmun fagna marki í leiknum sem þeir unnu 7:2. AFP

Þýska knattspyrnuliðið Borussia Dortmund bauð 220 flóttamönnum á leik liðsins gegn norska liðinu Odd Grenland á fimmtudaginn. Hefur framtakið vakið athygli en fjöldi flóttamannanna var meiri en sum lönd hafa boðist til að fá til sín. Independent greinir frá málinu.

Boðið á leikinn er hluti af stefnu sem hjálpar flóttamönnum að setjast að á nýjum stað og komast í takt við lífið. Myndum af hópnum var deilt á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #RefugeesWelcome.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert