Bjargaði stúlku hangandi í gluggasyllu með kústi

Skjáskot af Youtube

Maður í Shandong í Kína náði að bjarga ungri stúlku á ótrúlegan hátt þegar hún hékk á gluggasyllu á dögunum. Wang Baoping var á göngu þegar hann heyrði stúlkuna öskra eftir hjálp frá glugganum á fjórðu hæð íbúðarhúss. Wang hljóp inn í húsið og út um glugga við hlið stúlkunnar. Hann tók meðferðis kúst sem hann notaði til þess að halda barninu stöðugu í tuttugu mínútur. Á myndböndum sem tekin voru upp af vegfarendum má sjá manninn hanga út um hinn gluggann þar til foreldrar stúlkunnar náðu að toga hana aftur inn.

Stúlkan var skelkuð en ómeidd. Vegfarendur fögnuðu manninum og hugrekki hans eftir að stúlkunni var bjargað.

Frétt Sky News. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert