Fjallgöngumaður fann á miðvikudaginn fótlegg af manni þar sem hann var á ferð í fjallinu Kaunergrat í Austurríki. Fótleggurinn var klæddur í gönguskó og sokk. Talið er að líkamsparturinn tilheyri þýskum skíðamanni sem týndist á svæðinu í desember.
Fram kemur á fréttavefnum Thelocal.at að fjallgöngumaðurinn hafi haft samband við lögregluna og var fótleggurinn fluttur á rannsóknarstofu til athugunar. Talið er að fótleggurinn kunni að hafa fallið úr mikilli hæð í skriðu. Leit hefur staðið yfir á svæðinu að frekari líkamsleifum.