Fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch segir að Barack Obama, Bandaríkjaforseti sé ekki alvöru svartur forseti. Þetta ritar Murdoch á Twitter en þar hrósar hann Ben Carson, sem sækist eftir því að hljóta tilnefningu Repúblikanaflokksins í komandi forsetakosningum í hástert.
„Ben og Candy Carson eru frábær,“ segir Murdoch á Twitter og mælir með því að Bandaríkin fái almennilegan svartan forseta sem geti tekið á kynþáttaaðskilnaði í landinu.
Murdoch, sem er 84 ára, er stofnandi News Corporation fjölmiðlasamsteypunnar. Fyrirtæki hans á meðal annars Fox News Channel, The New York Post og The Wall Street Journal í Bandaríkjunum og Sky News, The Sun og Times dagblöðin í Bretlandi.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Murdoch lýsir aðdáun sinni á Carson, sem 63 ára fyrrverandi taugaskurðlæknir.
Ben and Candy Carson terrific. What about a real black President who can properly address the racial divide? And much else.
— Rupert Murdoch (@rupertmurdoch) October 8, 2015