Mannskæð árás í bandarískum háskóla

Frá háskólasvæðinu í Flagstaff
Frá háskólasvæðinu í Flagstaff Vefur Northern Arizona háskólans

Einn lést og þrír særðust í skotárás í háskóla í Arizona í nótt. Árásarmaðurinn var handtekinn og er í haldi lögreglu.

Árásin átti sér  stað í Northern Arizona háskólanum (NAU) en tilkynning barst til lögreglu á öðrum tímanum í nótt að staðartíma. Flestir þeirra sem búa stúdentagörðum skólans í Flagstaff voru í fastasvefni þegar árásin var gerð á bílastæði við eina bygginguna sem hýsir stúdenta. Ekki er vitað hvert tilefnið var en fjölmargar árásir hafa verið gerðar í framhaldsskólum í Bandaríkjunum undanfarin ár.

Boðað hefur verið til blaðamannafundar klukkan 6 að staðartíma, klukkan 13 að íslenskum tíma. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert