Hrottinn handtekinn

Nauðganir á konum og börnum í Indlandi er hryllingur sem …
Nauðganir á konum og börnum í Indlandi er hryllingur sem illa gengur að uppræta AFP

Indverska lögreglan hefur handtekið höfuðpaurinn í hrottalegu nauðgunarmáli í höfuðborg Indlands. Fórnarlambið er fjögurra ára gömul stúlka sem var beitt svo hryllilegu ofbeldi að hún liggur milli heims og helju á sjúkrahúsi.

Að sögn lögreglu var stúlkunni nauðgað og skorin með rakvélablaði, þegar ódæðismennirnir höfðu lokið sér af hentu þeir henni á járnbrautarteina þar sem hún fannst síðar um kvöldið meðvitundarlaus.

Stúlkan, sem er á gjörgæsludeild, var úti að leika sér skammt frá heimili fjölskyldunnar í fátækrahverfi Delí, þegar hún hvarf á föstudag. Áverkar hennar eru bæði innvortis sem útvortis og þurfi að byggja upp kynfæri hennar aftur eftir árásina. Að sögn lækna þarf hún að fara í fleiri aðgerðir en hún þarf að nota stómapoka næstu mánuði vegna þess hversu illa hún var útleikin.

Að sögn lögreglu er maðurinn sem er í haldi lögreglu 25 ára atvinnulaus karl. Hann kom oft í hverfið og þekkti fórnarlambið hann. Verið er að rannsaka hvort hann tengist fleiri kynferðisofbeldisbrotum og eins er rætt við fleiri þar sem talið er að fleiri hafi tekið þátt í árásinni. 

Swati Maliwal, sem er umboðamaður kvenna, segir að áverka stúlkunnar skelfilega en foreldrar hennar eru sárafátæk.

Alls var tilkynnt um 36.735 nauðganir í Indlandi í fyrra, þar af voru 2.096 í Delí.

Fjögurra ára nauðgað hrottalega

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert