Skaut ömmu sína í bakið

Skotvopn til sýnis í Bandarískri verslun.
Skotvopn til sýnis í Bandarískri verslun. AFP

Tveggja ára drengur í Bandaríkjunum skaut ömmu sína í bakið með byssu sem hann fann í bíl. Konan og barnið voru í bílnum sem var á ferð um Rock Hill í Suðus-Karólínu og sat systir konunnar við stýrið. Drengurinn fann byssuna í poka sem hékk aftan úr farþegasætinu og skaut ömmu sína sem sat í sætinu.

Samkvæmt Telegraph lifði konan skotið af og var færð á spítala með meiðsli sem voru ekki talin lífshættuleg.

Í yfirlýsingu lögreglunnar í Rock Hill er tekið fram að barnið hafi ekki verið í bílsæti þegar atvikið átti sér stað og því hafi hann getað teygt sig í byssuna.

„Við erum enn að reyna að finna út hvernig barnið togaði í gikkinn,“ segir í yfirlýsingunni. „Við hvetjum fólk að vanda til þess að halda vopnum sínum öruggum, sérstaklega í kringum lítil börn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert