Hvaðan er hún Nína litla?

Hún er kölluð Nína. En hvaðan kemur hún?
Hún er kölluð Nína. En hvaðan kemur hún?

Þau kalla hana Nínu en enginn veit hvað hún heitir, hvað hún er gömul eða hvaða tungumál hún talar. Stúlkan litla fannst í garði í Króatíu fyrir um mánuði. Talið er að hún sé um þriggja ára, segir í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar um málið. 

Yfirvöld í Króatíu telja mögulegt að hún hafi orðið viðskila við hóp flóttafólks frá Sýrlandi sem var kominn til landsins í leit að betra lífi í Evrópu. En hins vegar viðurkenna þau að þau hafa ekki hugmynd um hvaðan stúlkan kemur því ekki hefur tekist að finna út hvaða tungumál hún talar, enda stúlkan ung og því ekki almennilega farin að tala. 

En yfirvöld biðla nú til almennings og hafa leyft birtingu myndskeið af stúlkunni í von um að finna megi fjölskyldu hennar. 

Á síðustu tveimur mánuðum hafa yfir 330 þúsund flóttamenn komið til Króatíu. Flestir þeirra reyna að komast áfram til Vestur-Evrópu.

This little girl was found alone in a park in Croatia last month. Nobody knows who she is or what language she speaks - and now authorities are appealing for help to discover her identity: http://trib.al/sQSLvW1

Posted by Sky News on Friday, November 6, 2015
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert