Karlmaður í Newcastle hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps en hann reyndi að hrinda lögreglumanni fram af brú. Fyrir neðan brúnna var mikil umferðargata. Atvikið átti sér stað í gær.
Lögreglumaðurinn hafði komið á brúnna eftir að hafa fengið tilkynningu um að verið væri að ráðast á konu. Er hann kom á svæðið hljóp árásarmaðurinn í burtu og lögreglumaðurinn á eftir honum. Þegar hann loks náði honum reyndi hann að ýta honum fram af brúnni. Sem betur fer hafði hann ekki erindi sem erfiði, segir í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar um málið. Árásarmaðurinn var handtekinn og ákærður.