Minnast fórnarlamba hryðjuverkanna

Frakkar minnast í dag fórnarlamba hryðjuverkaárásanna sem gerðar voru í Parísarborg fyrir tveimur vikum. Alls létust 130 í árásunum og yfir 350 særðust.

Um eitt þúsund manns taka þátt í minningarstundinni í miðborg Parísar, þar á meðal forseti Frakklands, François Hollande. Nöfn þeirra sem létust verða lesin upp og þjóðin sameinast  í einnar mínútu þögn.

Um samhæfðar aðgerðir vígamanna sem voru vopnaðir árásarrifflum og sjálfsvígssprengjubeltum var að ræða. Ráðist var á fólk á veitingastöðum og börum, tónleikahús og reynt að komast inn á Stade de France, þjóðarleikvang Frakka, þar sem leikur Frakka og Þjóðverja fór fram. Meðal áhorfenda voru Hollande. 

Þrír árásarmannanna sprengdu sig upp fyrir utan leikvanginn, sem er í úthverfi Parísar, Saint-Denis.

Hryðjuverkin eru þau alvarlegustu í sögu Frakklands en aðeins tíu mánuðir eru frá hryðjuverkum sem beindust að ritstjórn Charlie Hebdo-skoptímaritsins í París og verslun gyðinga.

Minningarathöfnin fer fram í Invalides, þar sem herminjasafnið er og grafhýsi Napóleons. Þar mun Hollande ávarpa fjölskyldur fórnarlambanna.

Í frétt BBC kemur fram að Hollande hafi óskað eftir því að íbúar Frakklands sýni allir samstöðu með því að koma franska fánanum fyrir á heimilum sínum og hefur sala á fánanum meira en tvöfaldast undanfarna daga.

En ekki munu fjölskyldur allra þeirra sem voru drepnir í árásunum taka þátt í því. Fjölskylda eins fórnarlambsins segir í samtali við franska fjölmiðla að ekki hafi verið nóg gert til þess að verja þjóðina gegn slíkum voðaverkum eftir árásirnar í janúar.

Að minnsta kosti níu áttu beina aðild að árásunum 13. nóvember og eru þeir allir látnir fyrir utan tvo árásarmenn sem eru á flótta. Annar þeirra er Salah Abdeslam, sem hefur verið leitað víða í Frakklandi og Belgíu.

Hér er hægt að fylgjast með beint á vef Le Parisien

Les Invalides kirkjan og Pantheon
Les Invalides kirkjan og Pantheon AFP
Frá Invalides
Frá Invalides AFP
Frakklandsforseti François Hollande mun ávarpa fjölskyldur fórnarlambanna
Frakklandsforseti François Hollande mun ávarpa fjölskyldur fórnarlambanna AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert