Þrír létust í skotárás í Bandaríkjunum

Skotmaðurinn leiddur í burtu í handjárnum.
Skotmaðurinn leiddur í burtu í handjárnum. AFP

Byssumaðurinn sem hóf skotárás við heilsugæslu í Colorado Springs í Bandaríkjunum í gær skaut þrjá til bana og særði nokkra aðra í leiðinni. Lögregla kom fljótt á vettvang og króaði manninn af, en hann gafst ekki upp fyrr en eftir fimm tíma pattstöðu.

Frétt mbl.is: Skotárás í Bandaríkjunum

Árásin gerðist á svokölluðum Svarta föstudegi (e. Black Friday), en það er dagurinn eftir þakkargjörðahátíðina í Bandaríkjunum og helgast sá dagur alla jafna að miklu kaupæði þannig að verslunargötur og verslunarmiðstöðvar eru fullar af viðskiptavinum.

Frá vettvangi árásarinnar í nótt.
Frá vettvangi árásarinnar í nótt. AFP

Einn lögreglumaður og tveir almennir borgarar féllu

Meðal hinna látnu var einn lögreglumaður, en fimm aðrir lögreglumenn særðust. Tveir almennir borgarar létust í árásinni og fjórir særðust. Enginn hinna særðu er alvarlega slasaður.

Borgarstjóri Colorado Springs, John Suthers, þakkaði lögreglu fyrir að hafa náð að yfirbuga byssumanninn án þess að frekara blóðbað yrði. „Þetta er hræðilegur hræðilegur harmleikur,“ sagði hann við blaðamenn eftir að búið var að handtaka árásarmanninn.

Árásin við heilsugæslustöð

Ekki er enn ljóst hvort árásin var gerð gegn heilsugæslustöðinni, en hún er hluti af Planned Parenthood stofnununm, en þjón­usta þeirra snýr aðallega að æxl­un­ar- og kyn­heil­brigði. Þekkt­ust eru þau fyr­ir að bjóða upp á fóst­ur­eyðing­ar, en 325 þúsund slík­ar voru fram­kvæmd­ar árið 2013. Til viðbót­ar voru heim­sókn­ir vegna annarra mála um 10 millj­ón­ir.

Árásarmaðurnin særði allavega níu manns til viðbótar við þá þrjá …
Árásarmaðurnin særði allavega níu manns til viðbótar við þá þrjá sem létu lífið í árásinni. AFP

Árásarmaðurinn hefur verið nafngreindur, en hann heitir Robert Lewis Dear og er frá Suður Karólínu. Samkvæmt upplýsingum Denver Post er hann 57 ára gamall.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert