Bananar í útrýmingarhættu

Bananabóndi með uppskeru á leið á markað.
Bananabóndi með uppskeru á leið á markað. mbl.is/afp

Nýjar rannsóknir þykja staðfesta að bananinn, vinsælasti ávöxtur heims, sé í útrýmingarhættu af völdum svonefndrar Panamaveiki.

Panamasýkin hefur breiðst út til Suður-Asíu, Afríku, Miðausturlanda og Ástralíu og sprengt af sér hlekki sóttvarnartilrauna, að sögn hollenskra vísindamanna.  

Þeir segja að nú virðist óhjákvæmilegt að Panamaveikin sveifli sér yfir til Suðr-Ameríku sem hefði verulegar afleiðingar í för með sér og meiriháttar uppskerubrest. Þar væri við eðlilegar aðstæður að finna 82% uppskeru vinsælustu banana heimsins, Cavandishbananans. Um þriðjung hennar er svo að finna í Ekvador einu og sér.

Panamasýkin gerði næstum útaf við Gros Michel bananann á sjöunda áratug nýliðinnar aldar og ógnar nú öðrum tegundum. Afleiðingar sýkinnar uppgötvuðust fyrst árið 1876 í Ástralíu. Árið 1890 stakk veikin sér niður á Gros Michel ekrum í Costa Rica og Panama.

Veikinni veldur sveppur að nafni Fusarium oxysporum en hann berst í ávöxtinn gegnum jarðveg og vatn. Hann getur legið í dvala í jarðvegi í 30 ár sem gerir að verkum að ræktendum er með öllu ómögulegt að vita hvort og hvenær hann er að finna í plöntum þeirra.

Verkamenn á bananamarkaði í Yangon í Burma.
Verkamenn á bananamarkaði í Yangon í Burma. mbl.is/afp
Verkamenn á bananamarkaði í Yangon í Burma.
Verkamenn á bananamarkaði í Yangon í Burma. mbl.is/afp
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert