Vopnaður í Disneyland í París

AFP

Vopnaður maður hefur verið handtekinn í Disneyland skemmtigarðinum í París í Frakklandi. Hann var vopnaður tveimur skotvopnum við inngang hótels í garðinum. Maðurinn er 28 ára gamall og samkvæmt frétt BBC hefur hann ekki áður komist í kast við lögin í Frakklandi. Hann sýndi enga mótspyrnu þegar hann var handtekinn.

Disneyland hefur ekki sent frá sér tilkynningu varðandi handtökuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert