Fimm breskir karlmenn létust í umferðarslysi í Svíþjóð í gær. Breska utanríkisráðuneytið staðfestir það, en en fram kemur á vef Guardian og á Sky News að um sé að ræða liðsmenn hljómsveitarinnar Viola Beach og umboðsmann þeirra.
Mennirnir voru á aldrinum 19 til 35 ára. Þeir létust þegar bifreið sem þeir voru í rakst á vegartálma og skaust síðan fram af brú. Bifreiðin hafnaði ofan í skipaskurð í Södertälje.
Talskona sænsku lögreglunnar segir að kafarar hafi verið kallaðir út og að lík fimm karlmanna hefðu fundist.
Orsök slyssins liggja ekki fyrir. Fram kemur í sænskum fjölmiðlum að brú yfir Södertälje hafi verið að loka til að hleypa skipaumferð í gegn þegar slysið varð. Þá segir að viðvörunar ljós hafi blikkað og tveir vegatálmar hafi verið á veginum.
Hljómsveitin hafði haldið tónleika í Svíþjóð.
Samúðarkveðjur hafa borist á samfélagsmiðlum, m.a. á Facebooksíðu sveitarinnar.
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves, hefur birt færslu á Facebook þar sem greinir frá því að hann hafi verið á tónleikum hljómsveitarinnar í Svíþjóð sl. föstudagkvöld.
Horfði á fjóra 19 ára stráka frá Englandi spila á tónleikum á föstudagskvöldið. Spjallaði við umboðsmanninn þeirra áður...
Posted by Grímur Atlason on 14. febrúar 2016
So sad to hear about #violabeach. Such tragic news. Thoughts are with families and friends.
— V I C T O R I A (@VictoriaBandUK) February 14, 2016
All that the Club send our deepest sympathies to the @Viola_Beach boys and their families, absolutely tragic #violabeach
— Warrington Wolves (@wolvesrl) February 14, 2016