Olnbogaði eiginkonuna í andlitið

Ted Cruz faðmar eiginkonu sína Heidi sem hann olnbogaði í …
Ted Cruz faðmar eiginkonu sína Heidi sem hann olnbogaði í andlitið eftir að hann dró framboð sitt til baka. Óvart. AFP

Gærdagurinn var ekki dagur öldungadeildarþingmannsins Ted Cruz. Hann þurfti að lúta í gras fyrir Donald Trump og dró framboð sitt í forvali repúblikana í kjölfarið til baka. Til að bæta gráu ofan á svart olnbogaði hann eiginkonu sína ítrekað í andlitið fyrir framan fjölda sjónvarpsmyndavéla.

Trump gersigraði Cruz í forvalinu sem fór fram í Indiana í gær og viðurkenndi sá síðarnefndi þá að hann ætti enga mögulega á að stöðva sigurgöngu auðkýfingins. Þegar Cruz hafði lokið ræðu sinni þar sem hann dró framboð sitt til baka vildi þó ekki betur til en svo að hann kýldi og olnbogaði Heidi, eiginkonu sína, í andlitið þegar hann faðmaði aðstandendur sína sem stóðu með honum.

Ekki er hægt að segja annað en að síðustu dagar framboðs Cruz hafi verið sérstaklega niðurlægjandi. Höfuðandstæðingur hans Trump bendlaði föður Cruz við morðingja John F. Kennedy og á kosningafundi fyrir forvalið í Indiana varð Cruz fórnarlamb frammíkalla ungs drengs sem hrópaði meðal annars „Þú ert ömurlegur!“ (e. You suck) að honum.

Cruz brást við hrópum drengsins með því að segja stuðningsmönnum sínum að á heimili hans væri barn sem hegðaði sér svona rassskellt. Spjallþáttastjórnandinn Stephen Colbert gerði stólpagrín að Cruz vegna atviksins í þætti sínum í fyrrakvöld.

„Þú veist að útlitið er ekki gott fyrir framboð Cruz þegar það reynir nýtt kosningaslagorð: „Cruz 2016: Hann lemur börn“,“ sagði Colbert. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert