Karlotta Bretaprinsessa kom í fyrsta skipti fram opinberlega á svölum Buckingham-hallar í Bretlandi í dag í tilefni af níutíu ára afmæli drottningarinnar. Katrín hertogaynja hélt á dóttur sinni og fylgdist með herþotum fljúga fram hjá.
Vilhjálmur, eiginmaður Katrínar, var einnig á svölunum ásamt Georgi syni þeirra. Þar var einnig Elísabet Bretadrottning og Harry, barnabarn hennar og bróðir Vilhjálms.
Hér má sjá litlu prinsessuna. Hún var klædd í bleikan kjól og var með bleika slaufu í hárinu.