Trúarbrögð ekki ástæðan fyrir stríði

Frans páfi við komuna til Póllands.
Frans páfi við komuna til Póllands. AFP

Frans páfi segir að stríð ríki í heiminum en það sé ekki af völdum trúarbragða.

„Við megum ekki vera hrædd við að segja sannleikann. Það er stríð í heiminum vegna þess að hann hefur tapað friðnum,“ sagði Frans við komu sína til Póllands, degi eftir að öfgamenn myrtu prest í Frakklandi.

„Þegar ég tala um stríð þá á ég við stríð vegna hagsmuna, peninga og auðlinda, en ekki trúarbragða. Öll trúarbrögð vilja að friður ríki, það eru hinir sem vilja stríð,“ sagði hann.

Ríki íslams hefur lýst yfir ábyrgð á dauða kaþólsks prests í gær. Morðið hefur varpað skugga á ferð páfans til Póllands þar sem hundruð þúsunda kaþólskra ungmenna hafa safnast saman.

„Við heyrum mikið talað um óöryggi en réttast er að tala um stríð. Heimurinn hefur átt í sundurskiptu stríði í nokkurn tíma. Eitt stríð hófst 14, annað 39-45 og núna þetta,“ sagði hann og átti við fyrri og síðari heimsstyrjaldirnar.

Frans páfa var fagnað við komuna til Póllands.
Frans páfa var fagnað við komuna til Póllands. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert