Átta ára stúlku nauðgað á tjaldstæði

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. AFP

Lögreglan í Suður-Frakklandi leitar karlmanns sem sakaður er um að hafa ráðist á átta ára gamla stúlku og nauðað henni á tjaldstæði aðfaranótt þriðjudags.

Stúlkan, sem er hollensk var í tjaldútilegu með foreldrum sínum í Saint-Alban-Auriolles. Stúlkan svaf ein í tjaldi við hliðina á tjaldi foreldra sinna þegar þau heyrðu hana æpa. Læknisrannsókn leiddi í ljós að hún hafði verið beitt kynferðislegu ofbeldi. Lögreglan leitar ofbeldismannsins en leitin hefur enn ekki borið árangur.

Á árunum 2010-2012 var fjölmörgum stúlkum á aldrinum sex til 17 ára nauðgað og þær beittar kynferðislegu ofbeldi á tjaldstæðum á þessum slóðum. Í ágúst 2012 var ofbeldismaðurinn, Sébastien Dutheil, handtekinn og afplánar hann nú fjórtán ára dóm fyrir brot sín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert