Ráðist var á tvo einstaklinga á háskólalóð í New Jersey-ríki í Bandaríkjunum í dag og þeim veittir áverkar með hnífi. Árásarmaðurinn var handtekinn í kjölfarið.
Fram kemur í frétt AFP að árásin hafi átt sér stað um klukkan 18.30 að íslenskum tíma á lóð Rutgers-viðskiptaháskólans í bænum Piscataway. Ekki liggur fyrir hvað vakti fyrir árásarmanninum.
Fólkið var allt flutt á sjúkrahús þar sem gert var að sárum þess, þar á meðal árásarmaðurinn. Lögregla hefur ekki veitt frekari upplýsingar um málið.