Ástralski sundmaðurinn Grant Hackett er fundinn heill á húfi og edrú, segir faðir hans Neville Hackett.
Fyrr í dag greindi fjölskyldan frá því að Grant væri horfinn en lögregla var kölluð til á heimili fjölskyldunnar á þriðjudagskvöldið vegna hans. Grant Hackett hefur glímt við áfengis- og lyfjavanda undanfarin ár og óttast fjölskyldan um geðheilsu hans.
Neville segir að Grant hafi tjáð lögreglu að hann vildi bara fá að vera í friði.