Einn var myrtur og nokkrir slösuðust í árás á dómshús í norðvesturhluta Pakistan nú í morgun. Fréttavefur BBC segir þrjá sjálfsvígsmenn hafa verið drepna af lögreglu eftir að þeir reyndu að komast inn í dómshús í bænum Tangi.
Vitað er til þess að einn lögfræðingur hafi farist í tilræðinu, en vitni segjast hafa heyrt bæði sprengingar og byssuhvelli.
100 manns hafa farist í sjálfsvígsárásum í Pakistan undanfarið. Þannig fórust 80 manns í sjálfsvígsárás á hof í bænum Sehwan, sem hryðjuverkasamtökin Ríki íslams hafa lýst yfir ábyrgð á.