Tónlistarmaðurinn Chuck Berry látinn

Chuck Berry fæddist í St. Louis í Missouri 18. október …
Chuck Berry fæddist í St. Louis í Missouri 18. október 1926. AFP

Tónlistarmaðurinn Chuck Berry er látinn. Hann var níræður. Viðbragðsaðilar voru kallaðir að heimili söngvarans í hádeginu í dag, samkvæmt lögreglu í Missouri. Hann var meðvitundarlaus þegar komið var á staðinn og ekki tókst að endurlífga hann.

Meðal þekktari laga Berry voru Johnny B Goode og Roll Over Beethoven, auk No Particular Place to Go og You Never Can Tell.

Hinn goðsagnakenndi gítarleikari hlaut Grammy-verðlaun fyrir framlag sitt til tónlistarinnar árið 1984 og var meðal þeirra fyrstu sem teknir voru inn í Rock and Roll Hall of Fame árið 1986.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert