Fillon sakar Hollande um lekann

Francois Fillon fullyrti við sjónvarpsstöðina France 2 að núverandi forseti …
Francois Fillon fullyrti við sjónvarpsstöðina France 2 að núverandi forseti stæði að baki árásunum gegn sér. AFP

Francois Fillon, forsetaframbjóðandi franska Repúblikanaflokksins, sakaði í gærkvöldi nafna sinn og núverandi forseta, Francois Hollande, um að standa að baki fjölmiðlaleka til að skaða ímynd sína. Sagði hann Hollande fara fyrir leynilegri sellu sem bæri ábyrgð á lekanum og að þetta væri „hneykslismál sem ríkisvaldið væri flækt í“.

„Í tvo mánuði er pressan búin að ata mig auri,“ sagði Fillon í viðtali á sjónvarpsstöðinni France 2. Bætti hann við að samkvæmt bók sem standi til að gefa út á næstunni eftir „blaðamenn sem eru langt frá því að vera vinir mínir,“ hefði Hollande komist yfir upptökur tengdar rannsókninni. „Sem er fullkomlega ólöglegt,“ sagði Fillion.

Engin leynisella í forsetahöllinni

Einn höfunda bókarinnar sem hann vísar til, Didier Hassoux, hafnar hins vegar fullyrðingum Fillons og sagði hann örvæntingarfullan frambjóðanda sem sé að koma með óverjandi fullyrðingar. „Eini maðurinn sem trúir því að það sé leynisella í forsetahöllinni er Francoios Fillon,“ sagði Hassoux, og bætti við að leynisellan væri ekki til.

Hollande fordæmdi strax ásakanir Fillons, sem hann sagði ósannar með öllu. „Framkvæmdavaldið hefur aldrei skipt sér af dómskerfinu,“ sagði í yfirlýsingu frá forsetaembættinu vegna málsins.

Fillon þótti lík­leg­ur til að kom­ast í aðra um­ferð for­seta­kosn­ing­anna er hann var fyrst út­nefnd­ur fram­bjóðandi re­públi­kana.  Um mánuður er nú þar til fyrsta um­ferð frönsku for­seta­kosn­ing­anna fer fram, en Fillon sætir rannsókn vegna fjármála sinna, m.a. vegna launa­greiðslna til eig­in­konu sinn­ar og barna fyr­ir störf sem talið er að þau hafi ekki unnið. 

Hann hef­ur nú fallið niður í þriðja sæti í skoðana­könn­un­um og mun ef svo fer sem horf­ir ekki kom­ast áfram. Þykja nú þau Mar­ine Le Pen, leiðtogi frönsku Þjóðfylk­ing­ar­inn­ar, og óháði fram­bjóðand­inn Emm­anu­el Macron lík­leg­ust til að bít­ast um hnossið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert