Fimmtán ára í faðmi fertugrar konu

Macron-hjónin á heilsubótargöngu.
Macron-hjónin á heilsubótargöngu. AFP

Hann kynntist konunni sinni þegar hann var fimmtán ára sem væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að hún var þá fertug. En ástin hefur enst hjá Brigitte og Emmanuel Macron. 

„Væri ég tuttugu árum eldri en konan mín væri ekki nokkur maður að velta þessu fyrir sér en af því að konan mín er tuttugu árum eldri en ég þykir það ekki verjandi.“

Þetta sagði franski forsetaframbjóðandinn Emmanuel Macron við dagblaðið Le Parisien fyrir skemmstu en mikið hefur verið rætt og ritað um hjónaband hans í aðdraganda kosninganna. Eiginkonan, Brigitte, er ekki aðeins 24 árum eldri en Macron, heldur mun neistinn hafa kviknað þegar hann var aðeins fimmtán ára.

Sitthvað til í þessu hjá Macron; nákvæmlega sami aldursmunur er til dæmis á bandarísku forsetahjónunum, Melaniu og Donald Trump, og ekki hefur heimsbyggðin farið á hliðina af þeim sökum. Mögulega hefði það þó gerst hefðu hlutverkin verið á hinn veginn; Melania forseti og Donald forsetaherra.

„Þau eru ekki hefðbundið par,“ segir hagfræðingurinn Marc Ferracci, sem var svaramaður Macrons í brúðkaupinu, „en þau urðu ástfangin fyrir tuttugu árum og sú ást hefur enst. Saga þeirra er í raun sáraeinföld; þið verðið bara að sætta ykkur við það að fólk verður ástfangið og ástin er svo heit að það endist.“

Þegar fundum Macrons og Brigitte, sem kölluð er Bíbí, bar saman í grunnskóla í borginni Amiens árið 1993 var hann á sextánda ári en hún orðin fertug. Hún var kennslukona og kenndi latínu og bókmenntir. Brigitte kenndi Macron að vísu ekki en hafði umsjón með leiklistarklúbbnum í skólanum og þau settu upp leikrit saman. „Ég leit aldrei á hann sem nemanda minn,“ sagði Brigitte síðar í bók um þau hjónin. Hún var á þessum tíma gift þriggja barna móðir og miðdóttir hennar var með Macron í bekk.

Brigitte Macron þykir alþýðleg í fasi og hefur heillað franska …
Brigitte Macron þykir alþýðleg í fasi og hefur heillað franska kjósendur. AFP

Fjarlægðin styrkti þau

Þau urðu snemma náin og foreldrum Macrons stóð ekki á sama; sendu son sinn í heimavistarskóla í París til að tryggja hóflega fjarlægð milli turtildúfnanna. Allt kom fyrir ekki, parið fann leiðir til að hittast og rækta sambandið. Það var þó ekki fyrr en áratug síðar að Brigitte skildi við eiginmann sinn, bankamanninn Andre-Louis Auzière, til að vera með Macron. Þau gengu síðan í heilagt hjónaband fyrir áratug.

Í brúðkaupsveislunni þakkaði Macron fjölskyldu og börnum Brigitte fyrir að standa með þeim. „Við erum ekki venjulegt par – eins mikið og ég hata þá skilgreiningu – en við erum par eigi að síður,“ sagði hann við það tækifæri. Barnabörn Brigitte, sjö að tölu, kalla Macron ekki afa en nota þess í stað orðið „daddy“ upp á enskuna.

Fljótlega eftir að Macron varð fjármálaráðherra árið 2014 hætti Brigitte að kenna til að geta stutt betur við bakið á bónda sínum á hans pólitíska ferðalagi. Hún mun hafa verið eins og grár köttur í ráðuneytinu og Macron tjáði undrandi blaðamönnum að sjónarmið hennar skiptu sig máli og þannig yrði það áfram. Punktur. Basta. Hún er sögð ein af fáum sem hann treystir.

Brigitte hefur raunar verið mjög áberandi í frönsku slúðurlífi undanfarin misseri og Macron síst lagst gegn því sjálfur; hjónin láta reglulega sjá sig og ljósmynda saman. Sumir segja að það sé með ráðum gert til að vinna á móti þrálátum orðrómi þess efnis að Macron sé í raun samkynhneigður og að hjónaband þeirra Brigitte sé bara skrípaleikur. Þessu hefur hann ítrekað vísað á bug og sagt slúðrið dæmigert fyrir „hömlulausa hommafóbíu“ og „hatur í garð eldri kvenna“ í Frakklandi.

Brigitte nýtur mikillar hylli meðal stuðningsmanna Macrons og er iðulega kölluð fram á kosningafundum. Fólkið „fílar“ hana.

Þar ber okkur að vera!

Ekki er hefð fyrir því að maki Frakklandsforseta hafi sérstakt hlutverk, annað en að láta sjá sig á tyllidögum, en talið er að það muni breytast nái Macron kjöri í dag. „Ég tek þátt í öllu því sem eiginmaður minn tekur sér fyrir hendur og hef gert undanfarin tuttugu ár,“ sagði hún á útifundi nýlega. „Þið virkið alltaf jafnundrandi á því að eigin-konan standi þétt við hlið bónda síns en það er tímabært að samfélagið þróist. Þar ber okkur að vera!“

Harður þjálfari

Emmanuel Macron þykir kraftmikill ræðumaður og enginn velkist í vafa um það hver ber þar mesta ábyrgð; Brigitte. Hún hefur unnið í framsögu hans í tæpan aldarfjórðung, frá því að þau kynntust í leiklistarklúbbnum í Amiens forðum daga, og er hvergi nærri hætt. „Brigitte segir alltaf að ég sé of langorður,“ sagði Macron í léttum tón við stuðningsmenn sína á fundi um daginn. Hún fylgist með hverju orði hans, hverri hreyfingu í ræðustól. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert