Karlmaður sem lést er maður ók viljandi á hóp múslima skammt frá mosku í London lést vegna fjölda áverka sem hann hlaut að því er fram kemur í krufningarskýrslu.
Í fyrstu var ekki ljóst hvert banamein hans var. Þegar árásarmaðurinn ók að hópnum var verið að stumra yfir Makram Ali sem hafði fallið í yfirlið fyrir utan moskuna.
Ali var 51 árs, fjögurra barna faðir. Hann lést á vettvangi.
Níu særðust í árásinni.
Árásarmaðurinn ók sendibíl upp á gangstétt og á fólkið sem þar var saman komið. Vegfarendur náðu að handsama hann og halda þar til lögregla kom á vettvang.
Lögreglan rannsakar nú málið sem hryðjuverk.