Stóð upp eftir harkalega ákeyrslu

Strætóinn keyrði á Smith.
Strætóinn keyrði á Smith. LJósmynd/Twitter

Eftirlitsmyndavélar í Reading í Englandi náðu myndskeiði af því þegar strætisvagn keyrði á mann á laugardaginn. Maðurinn stóð upp eftir þungt högg og fór inn á krá. BBC greinir frá.

Simon Smith segist vera heppinn að vera á lífi eftir að strætó keyrði á hann þar sem hann gekk yfir götu. Myndskeið sýnir vagninn keyra á Smith, sem kastaðist til við höggið.

Smith lá í smástund í jörðinni áður en hann stóð upp og gekk inn á krá. Framkvæmdastjóri strætó í Reading segir að málið sé til rannsóknar en rúða brotnaði í strætisvagninum í árekstrinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert