Lést í tívolítæki

Skemmtigarður í borginni Columbus í Ohio-ríki í Bandaríkjunum.
Skemmtigarður í borginni Columbus í Ohio-ríki í Bandaríkjunum.

Einn lét lífið og þrír eru alvarlega slasaðir eftir slys í tívolítæki í skemmtigarði í borginni Columbus í Ohio-ríki í Bandaríkjunum. Sá sem lést kastaðist út úr tækinu á ferð sem kallast „eldhnötturinn“ og var fallið niður á jörðina  tæplega 10 metrar. BBC greinir frá. 

Öllum tækjum í skemmtigarðinum hefur verið lokað í öryggisskyni á meðan á rannsókn málsins stendur yfir. Þetta segir John Kasich ríkisstjóri. 

Slysinu má líkja við að vélhjól skelli með fullum þunga á vegg, að sögn læknis sem hefur hlúð að hinum slösuðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert