Enn eitt eldflaugaskot Norður-Kóreu

Ríkisfréttastofa Norður-Kóreu birti þessa mynd fyrr í mánuðinum og sagði …
Ríkisfréttastofa Norður-Kóreu birti þessa mynd fyrr í mánuðinum og sagði hana sýna langdræga eldflaug sem skotið var á loft 4. júlí sl. AFP

Fjölmiðlar í Japan og Suður-Kóreu segja stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa framkvæmt enn eina eldflaugatilraunina. Flaugin virðist hafa komið niður á japönsku hafsvæði, samkvæmt ríkisfréttastofunni NHK.

Bandaríkjamenn hafa einnig staðfest að hafa orðið skotsins varir.

Fyrr í mánuðinum héldu ráðamenn í Pyongyang því fram að hernum hefði tekist að skjóta á loft langdrægri eldflaug í fyrsta sinn. Um var að ræða síðasta eldflaugaskotið af mörgum, sem stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa staðið að í trássi við bann Sameinuðu þjóðanna.

Ekki liggur fyrir hversu langt flaugin sem skotið var á loft í dag fór.

Drægni langdrægra eldflauga Norður-Kóreu er umdeild en sumir sérfræðingar segja þær mögulega geta náð Alaska.

BBC og AFP sögðu frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert