Nokkrir slösuðust þegar strætó var ekið inn í verslun við fjölfarna verslunargötu í London í morgun.
Hjúkrunarfræðingurinn Amy Mullineux var á meðal farþega í strætisvagninum og hefur hún eftir bílstjóranum að hann hafi misst meðvitund skömmu áður en vagninn hafnaði inn í versluninni. „Hann man ekki neitt,“ segir Mullineux.
Slysið var við Lavender Hill í suðvesturhluta borgarinnar og voru nokkrir tugir farþega í strætisvagninum þegar slysið varð.