Tíu bandarískra sjóliða er saknað og fimm eru slasaðir eftir að tundurspillir þeirra lenti í árekstri við kaupskip austur af Singapúr. Þetta annað bandaríska herskipið sem lendir í slysi á síðustu tveimur mánuðum.
Bandaríska herskipið, John S. McCain, lenti í árekstri við kaupskipið Alnic MC skammt frá Malaccasundi í nótt, segir í tilkynningu frá Bandaríkjaher.
Fjórir sjóliðar sem slösuðust voru fluttir af herskipinu á sjúkrahús í Singapúr með þyrlum en enginn þeirra er í lífshættu. Sá fimmti er með minniháttar áverka eftir slysið.
Herskipið heitir eftir afa og föður bandaríska öldungadeildarþingmannsins Johns McCains en þeir voru báðir herforingjar í bandaríska sjóhernum. Skipið var á leið til hafnar í Singapúr þegar áreksturinn varð, um 5:24 að staðartíma, 21:24 að íslenskum tíma.
McCain segir á Twitter að hann og eiginkona hans biðji fyrir sjóliðunum og þau séu þakklát leitar- og björgunarfólki sem leiti þeirra sem er saknað. Donald Trump Bandaríkjaforseti tekur í svipaðan streng á Twitter.
Cindy & I are keeping America's sailors aboard the USS John S McCain in our prayers tonight - appreciate the work of search & rescue crews https://t.co/jzk9giXbfg
— John McCain (@SenJohnMcCain) August 21, 2017
Thoughts & prayers are w/ our @USNavy sailors aboard the #USSJohnSMcCain where search & rescue efforts are underway. https://t.co/DQU0zTRXNU
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) August 21, 2017