Ættartré Kims Jong-un

Kim Jong-un í október 2015 ásamt eiginkonu sinni Ri Sol-ju.
Kim Jong-un í október 2015 ásamt eiginkonu sinni Ri Sol-ju. AFP

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, og eiginkona hans, Ri Sol-ju, eignuðust sitt þriðja barn í febrúar síðastliðnum. Í tilefni þess hefur AFP-fréttastofan birt ættartré Kims Jong-un.

Samkvæmt upplýsingum frá leyniþjónustu Suður-Kóreu gengu Ri og Kim í hjónaband árið 2009 og árið eftir eignuðust þau sitt fyrsta barn. Annað barn þeirra hjóna fæddist árið 2013.

Tíðindin af barninu bárust um svipað leyti og greint var frá því að norðurkóresk stjórnvöld hefðu skotið flugskeyti yfir norðurhluta Japans. 

Þrátt fyrir að Kim Jong-un hafi verið meira áberandi en faðir hans, Kim Jong-il, er lítið er vitað um persónulega hagi Kim. Til að mynda eru engar staðfestar upplýsingar til um afmælisdag hans.

Ættartré Kims sem AFP-birtir er því byggt á þeim upplýsingum sem fyrir liggja. Smelltu á myndina til að sjá betur textann sem fylgir ættartrénu. 

mbl
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert