„Hræðilegt ábyrgðarleysi“ Norður-Kóreu

Mattis er á leið í þriggja daga heimsókn til Indlands …
Mattis er á leið í þriggja daga heimsókn til Indlands þar sem hann hyggst meðal annars ræða kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu. AFP

Jim Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir það sýna hræðilegt ábyrgðarleysi af hálfu stjórnvalda í Norður-Kóreu ef þau láta verða af hótunum sínum og gera tilraun með vetnissprengju yfir Kyrrahafinu. AFP-fréttastofan greinir frá.

Mattis lætur þessi orð falla í kjölfar mikils orðaskaks á milli leiðtoga Norður-Kóreu og forseta Bandaríkjanna í tengslum við kjarnorkuáætlun þeirra fyrrnefndu.

Ri Yong-Ho, utanríkisráðherra Norður-Kóreu, lét þau orð falla á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að það ríki hans gæti gert tilraun með vetnissprengju yfir Kyrrahafinu.

Mattis brást við þessu í flugi á leið til Indlands þar sem hann hyggst meðal annars ræða öryggismál og kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu við leiðtoga landsins í þriggja daga heimsókn. „Það væri hræðilegt ábyrgðarleysi gagnvart heilsu alþjóðasamfélagsins og stöðugleika,“ sagði hann við fjölmiðlamenn.

Mattis vildi aðspurður hins vegar ekki svara því hvort litið yrði á slíka tilraun sem stríðsyfirlýsingu.

Á laugardag var banda­rískri sprengjuflug­vél í fylgd orr­ustuþotna hers­ins flogið nærri aust­ur­strönd Norður-Kór­eu. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Pentagon, varn­ar­málaráðuneyti Banda­ríkj­anna, var til­gang­ur­inn að sýna fram á hernaðarlega yf­ir­burði Banda­ríkja­hers um­fram vopna­búnað yf­ir­valda í Pyongyang, höfðuborg­ar Norður-Kór­eu.

Dagana áður hafði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, meðal annars kallað Kim Jong-Un, leiðtoga Norður-Kóreu, brjálæðing og eldflaugamann. Þá hótaði forsetinn því að gjöreyða Norður-Kóreu í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Kim sagði Trump hins vegar andlega brenglaðan og sagði hann koma til með að gjalda það dýru verði að hóta Norður-Kóreu. Í millitíðinni hafði Ri Yong-ho, ut­an­rík­is­ráðherra Norður-Kór­eu, líkt bandaríska forsetanum við gjammandi hund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert