Donald Trump Bandaríkjaforseti hvetur Evrópusambandið til að fylgja fordæmi Bandaríkjanna og beita viðskiptaþvingunum gegn „kúgandi“ stjórn Nicolas Maduro, forseta Venesúela.
Trump undirritaði tilskipun í síðasta mánuði en samkvæmt henni munu Bandaríkin ekki eiga viðskipti við stjórnvöld í Venesúela og olíufyrirtæki í landinu.
„Við vonum að vinir okkar í Evrópusambandinu munu fljótlega fylgja Bandaríkjunum, Kanada og mörgum þjóðum í Suður-Ameríku í þessum þvingunaraðgerðum,“ sagði Trump á blaðamannafundi í dag.
„Almennir borgarar hafa þurft að líða mikla hungursneyð undir stjórn kúgandi leiðtoga,“ bætti Trump við.