Stjórnlagadómstóll Spánar frestaði í dag fyrirhuguðum þingfundi katalónska þingsins sem halda átti á mánudag til að reyna að hindra að héraðið geti lýst yfir sjálfstæði að því er BBC greinir frá.
Sagði í úrskurði dómstólsins að slík yfirlýsingu brjóti í bága við stjórnarskrána Spánar. Áður hafði Mario Rajoy, forsætisráðherra Spánar, varað ríkisstjórn Katalóníu við að lýsa yfir sjálfstæði í kjölfar kosninganna á sunnudag líkt og Carles Puigdemont, forseti Katalóníu, hafði gefið í skyn að gert yrði. Sagði Puigdemont í samtali við BBC í gær að vonast til að héraðið geti lýst yfir sjálfstæði í lok þessarar viku eða í byrjun þeirrar næstu.
Reuters hefur eftir Puigdemont að hann óttist ekki að verða handtekinn fyrir að skipuleggja kosninguna um sjálfstæði Katalóníu í trássi við bann spænsku stjórnarinnar.
Segir BBC dómstólinn hafa með úrskurði sínum tekið undir með sósíalistaflokki Katalóníu sem er mótfallinn aðskilnaði frá Spáni.
Það bryti í bága við réttindi þingmanna flokksins ef þinginu yrði heimilað að koma saman og lýsa yfir sjálfstæði að því er segir í úrskurði dómstólsins.
Skipuleggendur kosninganna á sunnudag segja kosningaþátttöku hafa verið um 42% og að 90% hafi kosið með aðskilnaði frá Spáni. Lokatölur hafa þó enn ekki verið birtar.