Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að aðeins eitt muni virka í samskiptunum við Norður Kóreu. Í nýlegri Twitter-færslu sinni segir hann forseta Bandaríkjanna hafa átt í viðræðum við Norður Kóreu í 25 ár þar sem samningar hafi verið gerðir og miklum fjármunum verið eytt.
Það hafi hins vegar ekki borið árangur og samningar hafi verið brotnir áður en blekið hafi náð að þorna og samningamenn Bandaríkjanna þar með verið hafðir að fíflum.
Presidents and their administrations have been talking to North Korea for 25 years, agreements made and massive amounts of money paid......
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) 7 October 2017
...hasn't worked, agreements violated before the ink was dry, makings fools of U.S. negotiators. Sorry, but only one thing will work!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) 7 October 2017