Talinn hafa misnotað 84 börn

Kennarinn sem starfar í höfuðborginni Quito er talinn hafa misnotað …
Kennarinn sem starfar í höfuðborginni Quito er talinn hafa misnotað 84 börn. google

Kennari í Ekvador hefur verið hnepptur í varðhald vegna gruns um að hafa misnotað 84 börn kynferðislega. Saksóknarinn, Mariana Huilcapi, segir að kennarinn sem starfar í höfuðborginni Quito hafi verið hnepptur í varðhald í tengslum við rannsókn sem hófst í júlímánuði vegna gruns um kynferðisofbeldi innan menntakerfisins.

„Fyrstu upplýsingar bentu til 10 mála þar sem grunur léki á kynferðisbroti. Rannsóknin leiddi hins vegar í ljós að hægt var að úrskurða að 84 börn hefðu tengst málinu,“ sagði Huilcapi og kvað börnin vera á aldrinum 12-14 ára.

Ekki er langt síðan saksóknari fyrirskipaði varðhald yfir þremur kennurum, sem grunaðir voru um að misnota börn í skóla í borginni Guayaquil. Yfirvöld eru nú að rannsaka tugi glæpa í Guayaquil og hafa boðið andvirði 10.000 dollara í fundarlaun fyrir hvern þann sem getur hjálpað þeim að hafa uppi á fjórða kennaranum sem er sagður tengjast málinu.

Rannsakendur yfirheyrðu fimm börn á aldrinum 7-8 ára sem sögðu kennarana hafa misnotað þá í baðherbergjum skólans í frímínútum og að þeir hefðu beitt „blekkingum, hótunum og þvingunum“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert