Elísabet Englandsdrottning og Filippus prins fagna í dag sjötíu ára brúðkaupsafmæli. Deginum verður fagnað með nánustu ættingjum.
Þau gengu í hjónaband í Westminster Abbey 20. nóvember árið 1947, aðeins tveimur árum eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Mikill fjöldi fólks fagnaði deginum með þeim á þeim tíma en konungborið fólk alls staðar að úr heiminum kom til London til að taka þátt í veisluhöldunum.
En í dag verða hátíðarhöldin lágstemmdari enda Elísabet 91 árs að aldri og Filippus er 96 ára gamall. Þau dvelja í Windsor-kastala í dag ásamt fjölskyldu sinni.