Sakar þingmann um óviðeigandi snertingu

Al Franken.
Al Franken. AFP

Önnur kona hefur stigið fram og sakað öldungardeildarþingmann demókrata, Al Franken, um að hafa snert hana á óviðeigandi hátt. Konan segir Franken hafa snert sig fyrir sjö árum.

Lindsay Menz, 33 ára gömul kona, sagði í samtali við CNN að Franken hefði gripið í rassinn á henni þar sem þau stilltu sér upp fyrir myndatöku í Minnesota árið 2010.

Franken sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem fram kemur að hann muni ekki eftir atvikinu en sé miður sín yfir hennar líðan yfir fundi þeirra.

„Ég hugsaði með mér, Guð minn góður, hvað er í gangi,“ sagði Menz en hún segir að Franken hafi haldið um rassinn á henni í nokkrar sekúndur.

Í síðustu viku greindi útvarpskonan Lee­ann Tweeden frá því að Franken hefði kysst hana gegn vilja henn­ar og káfað á henni þegar hún svaf fyrir ellefu árum. 

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert