Aska og reykur upp af eldfjallinu Agung

Reykur stígur upp af eldfjallinu Agung á Balí.
Reykur stígur upp af eldfjallinu Agung á Balí. AFP

Eldfjallið Agung í Balí spjó ösku og reyk í 700 metra hæð í dag. Óttast er að eldgos muni brjótast út á næstunni en það mun verða í fyrsta skipti í 50 ár. Frá því í ágúst hefur fjallið rumskað þar sem aukin virkni hefur orðið og reykur stigið upp úr gosopi fjallsins. Mörg þúsund íbúar í nágrenni fjallsins flúðu í skjól í lok september af ótta við eldgos.

Hættustig hefur ekki verið hækkað vegna þessa, segir Made Indra hjá almannavörnum Balí. „Þetta eru ekki eldsumbrot,“ sagði Indra við AFP og bætti við: „Í eldgosi þeytast gosefni upp úr eldfjallinu. Í þetta skipti hefur það ekki orðið. Þetta er reykur.“

Balí er vin­sæll viðkomu­staður ferðamanna og er Ag­ung í um 75 kíló­metra fjar­lægð frá ferðamannastaðnum Kuta á eyj­unni. Yfirvofandi eld­gos hefur þegar haft veru­leg áhrif á komu ferðamanna til landsins og óttast yfirvöld frekari tekjumissi vegna óróleikans sem hófst í ágúst.  

Eldfjallafræðingurinn Gede Suantika á Balí er ekki sammála þessu mati Indra. Hann vill að fólk sem býr í um sex kílómetra nálægð við eldfjallið ætti að flýja af svæðinu.  

Eldfjallið Agung gaus síðast árið 1963 og þá lét­ust um 1.600 manns.

Eldfjallið Agung.
Eldfjallið Agung. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert