50 kannabisplöntur fundust við húsleit í Þykkvabæ

Kannabisplöntur.
Kannabisplöntur. mbl.is

Lögreglan á Hvolsvelli og fíkniefnalögreglumaður við rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi gerðu í gær húsleit í íbúðarhúsi í Þykkvabæ þar sem ræktun á kannabisplöntum fór fram í nokkrum mæli. Hald var lagt á u.þ.b. 50 kannabisplöntur og mun stærsta plantan vera u.þ.b. 110 sm á hæð. Þá var lagt hald á nokkra tugi gramma af niðurskornu marijuana auk áhalda til fíkniefnaneyslunnar.

Grunur leikur á að ræktun þessi hafi staðið yfir í nokkuð langan tíma. Einn karlmaður var handtekinn í tengslum við rannsóknina og hefur hann þegar viðurkennt ræktunina, að eiga plönturnar, það marijuana sem lögregla fann og áhöld til neyslu. Ekki er útilokað að hluta efnisins hafi átt að selja. Karlmanninum var sleppt að lokinni yfirheyrslu laust fyrir miðnætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert