Hátt í 100 manns hafa sótt um dælulykil Atlantsolíu frá því síðdegis í gær. Slíkan fjölda hafa forráðamenn félagsins aldrei séð en líklegt má telja að ástæðan sé niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í gær vegna málshöfðunar einstaklings á hendur einu af olíufélögunum, að því er segir í fréttatilkynningu frá Atlantsolíu.