Lögreglan á Egilsstöðum mældi ökumann á 140 km hraða á klst. á Egilsstaðanesi um tíuleytið í gærkvöld, en hámarkshraði þar er 70 km á klst. Tekið var öndunarpróf úr manninum með S-D2 mæli og reynist það vera 1.2 prómill.
Samkvæmt ákvörðun lögreglustjórans á Seyðisfirði var ökumaður sviptur ökurétti til bráðabirgða á staðnum.