Rán var framið í versluninni Samkaup í Sandgerði um klukkan sjö í kvöld, en maður kom inn í verslunina og skipaði afgreiðslustúlku að opna peningakassa verslunarinnar. Ekki er vitað með vissu hve miklu fé maðurinn náði. Maðurinn komst undan, en lögregla hefur nokkuð góða lýsingu á honum og er málið í rannsókn.