Breytt uppbygging á fargjöldum Icelandair

Vefsíða Icelandair.
Vefsíða Icelandair.

Icelandair kynnir í dag ný fargjöld í áætlunarflugi sínu og breytta uppbyggingu á fargjöldum félagsins. Geta farþegar nú keypt mismunandi þjónustu á ferð sinni, t.d. keypt aðra leiðina á lágu tilboðsverði, en hina leiðina á SagaClass.

Í tilefni af þessari breytingu verður boðið upp á fargjöld til London, Kaupmannahafnar, Osló, Stokkhólms, Helsinki og Bergen frá 9900 krónur með sköttum og gjöldum, aðra leiðina.

Icelandair fagnar á ár 70 ára afmæli félagsins og býður nú í sumar upp á langstærstu flugáætlun í sögu fyrirtækisins og flýgur til 25 áfangastaða í reglulegu áætlunarflugi. Vélar félagsins fara um 160 ferðir á viku frá Keflavík til útlanda í sumar, eða á þriðja tug ferða á hverjum degi.

Heimasíða Icelandair

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka