Fimmtán hafa verið teknir fyrir hraðakstur á Hellisheiði og á Suðurlandsvegi í dag. Sá sem ók hraðast var á 141 km/klst. Einn var tekinn fyrir notkun á farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað og einn tekinn sem hafði áður verið sviptur ökuleyfi fyrir ölvunarakstur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.