Ökumaður sem var einn í bíl sínum á leið suður Öxnadalsheiði hlaut áverka á baki er hann ók út af veginum og velti bílnum. Að sögn lögreglu var ökumaðurinn sem er um fimmtugt við meðvitund og hafði komist sjálfur út úr bílnum sem er talinn vera gjörónýtur. Ökumaðurinn var síðan fluttur á sjúkrahúsið á Sauðárkróki til aðhlynningar. Að sögn lögreglu er talið að maðurinn hafi fengið aðsvif undir stýri.