Enn einn handtekinn grunaður um aðild að þjófagengi

Lögregla handtók í morgun einn mann til viðbótar, grunaðan um aðild að þjófagengi, sem farið hefur ránshendi um verslanir í höfuðborginni undanfarið, að því er Ómar Smári Ármansson, yfirmaður auðgunarbrotadeildar lögreglunnar, sagði. Þetta er 15. maðurinn sem handtekinn er, grunaður um að vera í genginu. Farið verður fram á gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manninum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka