Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt tvo karlmenn í 45 daga skilorðsbundið fangelsi hvorn fyrir að slá þriðja manninn í gangstétti á Eskifirði í apríl sl. Mennirnir spörkuðu síðan í liggjandi manninn með þeim afleiðingum m.a. að framtönn í efri góm brotnaði og önnur losnaði.
Mennirnir, sem játuðu brotið, voru einnig dæmdir til að greiða þeim sem þeir réðust á 471 þúsund krónur í bætur.
Þá var 18 ára gamall piltur dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá annan mann margoft með krepptum hnefa í höfuð og andlit bæði utan við samkomuhús í Fellabæ í mars. Einnig veitti pilturinn manninum fleiri áverka. Hann játaði brotið.