Neytendasamtökin hafa sent frá sér tilkynningu vegna ákvörðunar Kaupþings um að hætta að heimila íbúðakaupendum að yfirtaka áhvílandi íbúðalán nema að vextir verði þeir sömu og eru á nýjum lánum. Í tilkynningunni segir að að um enn eina álöguna á neytendur að hálfu lánveitenda sé að ræða sem þýði að kjör lántakenda versni umtalsvert og að þeir þurfi í vaxandi mæli að greiða uppgreiðslugjald vegna lána.
Neytendasamtökin hafa mótmælt uppgreiðslugjaldinu á þeim forsendum að það sé bæði ósanngjarnt og samkeppnishindrandi eins og fyrirkomulagið er í dag. Samtökin segja uppgreiðslugjald með einhliða skilmálum fjármálafyrirtækja ekkert annað en skattlagningu á neytendur, sem sé sambærilegt við stimpilgjaldið, sem stjórnvöld hafi lofað að fella niður.
Neytendasamtökin vara í tilkynningunni fjármálafyrirtæki við því að breyta einhliða skilmálum sínum eða túlkun þeirra á þeim ef það er gert með íþyngjandi hætti fyrir neytendur eins og um er að ræða í þessu tilviki. Jafnframt telja Neytendasamtökin eðlilegt að fjármálafyrirtæki tilkynni viðskiptavinum sínum með ótvíræðum hætti allar breytingar á skilmálum og túlkun fyrirtækjanna á þeim.
Neytendasamtökin sendu Kaupþingi bréf þar sem óskað var skýringa á þessu. Í svari Kaupþings kom fram að með vísan í lánssamning sé þeim heimilt að gera þetta og var lögð áhersla á í svarinu að þetta hafi engin áhrif á þá sem nú þegar eru með íbúðalán hjá Kaupþingi, þeir geti flutt lánið með sér kaupi þeir nýja fasteign.
Neytendasamtökin hafa sent Neytendastofu bréf vegna málsins þar sem óskað er eftir að hún skoði málið. Samtökin óska m.a. eftir að kannað verði með tilliti til gildandi samningsskilmála Kaupþings hvort þetta stenst. Einnig kemur til greina að mati Neytendasamtakanna hvort víkja beri slíkum skilmálum til hliðar en samkvæmt 36. gr. samningalaga er heimilt að víkja til hliðar ákvæðum í samningum séu þeir ósanngjarnir gagnvart neytendum. Minnt er á að með þessari ákvörðun er verið að túlka samningsskilmála með nýjum og takmarkandi hætti og er það í litlu samræmi við yfirlýsingar fjármálafyrirtækja þegar þau hófu að veita íbúðalán. Jafnframt hvetja Neytendasamtökin til þess að kannað verði hvort aðrir lánveitendur séu með svipaða skilmála eða túlkun á þeim og Kaupþing ætlar nú að taka upp.