Hundruð barna í 1. til 5. bekk fengu í dag glaðning frá lögreglunni, en lögreglumenn óku í dag heim gjöfum til þeirra barna sem dregin voru út í árlegri jólagetraun Umferðarstofu og lögreglunnar. Þau börn sem fengu heimsókn frá lögreglunni voru að vonum ánægð, enda er það margsannað að það borgar sig að hafa umferðarreglurnar á hreinu.